Frétt — Myglar — 25. 2. 2003
Komst í samband við framliðna Sinclair tölvu
Sinclair tölvan birtist ljóslifandi fyrir tilstilli rafræna miðilsins

Júlíus Eggerz, kerfisfræðingur, komst nú um helgina í samband við framliðna Sinclair Spectrum 48K tölvu sem hann átti sem unglingur. Sambandið náðist gegnum rafrænan miðil sem náði tengslum við hina framliðnu tölvu í gegnum svokallað eþernet. Július kvaðst í samtali við Baggalút hafa þekkt tölvuna aftur og að hún hefði fyrirgefið honum - en hann átti á sínum tíma sjálfur þátt í dauða hennar eftir sérlega slæmt gengi í leiknum Football Manager.

Athugið.

Hafnfirðingar sem hafa rafljós, eru vinsamlegast beðnir, vegna ljóslækninga, að slökkva á ljósunum kl. 10 á morgnana.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: