Eins og kunnugt er hafa þingmenn Samfylkingarinnar óskað eftir sambærilegri skýrslu um um fjárhagsleg málefni og starfslok fyrrverandi forstjóra Símans og Ríkisendurskoðun gerði fyrir fyrirtækið á síðasta ári. Var þessa óskað í kjölfar þess að stjórn Símans vildi ekki birta skýrslu Ríkisendurskoðunar opinberlega.
Við upphaf þingfundar í dag gerði Halldór Blöndal forseti Alþingis grein fyrir forsendum þess að hafna ósk þingmannanna. Þegar þingmenn stjórnarandstöðu drógu í efa að "af því bara" og "jú, víst" væru fullnægjandi rök hóf forseti að víta þingmenn af handahófi og endaði á því að láta ryðja þingsalinn.
Læknadóp
Magnyl! Strepsils! Paracetamol! Benylin! B-Vítamín! Vics! Bonjela! Viox! Acenton! Íbúfen!
Boggi dálkur - Hlemmi
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.