Hermann Baldursson sagnfræðingur, sem stundar rannsóknir á Vestur-Íslendingum í Kanada, fann nú fyrir skemmstu umboð til stjórnarmyndunnar í bunka af gömlum skjölum. "Ég var að fara yfir gömul íslensk sendibréf á safni í Manitoba þegar ég rakst á þetta líka fína umboð til stjórnarmyndunar, alveg ónotað," sagði Hermann í viðtali. Talið er að umboðið hafi verið sent til Kanada í misgripum, líklega með jólakorti.
Áríðandi!
Sekkjapípa óskast leigð nú þegar. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.