Flugfélagið Sparísflug (Spare-Ice Air), hefur starfsemi snemma í næsta mánuði og býður fyrst íslenskra flugfélaga upp á lág fargjöld og jafnvel beinlínis ódýr á stundum. Sá munur er á vélum Sparís og annarra flugfélaga (dýrari), að þær flytja einungis mjög takmarkaðan fjölda farþega og þjónusta um borð er í algeru lágmarki. Verðmunur er þó verulegur eða allt að 7% á sumum leiðum (t.d. Lonnested í Danmörku og Dynelsburg í Skotlandi). Þegar er uppselt í fyrstu ferðina til Gardenpool í Englandi, sem farin verður snemma í febrúar (ef veður leyfir).
Einungis er hægt að bóka gegnum faxtæki.
Gefins!
Nokkrir pokar af regnvatni. Á sama stað fæst einnig gefins talsvert af mosa.
A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.