Frétt — Númi Fannsker — 6. 1. 2003
Minnismerki um óþekka kjósandann afhjúpað.
"Vaxel" þykir sláandi líkur hinum almenna kjósanda

Vaxmyndverkið "Vaxel - óþekki kjósandinn", var afhjúpað í skála Alþingis í morgun að viðstöddu fjölmenni. Verkið er nafnlaus gjöf frá "aðdáanda hins íslenska Lýðveldis", en þessi nafnlausi velgjörðamaður hefur áður gefið ríkisvaldinu fræg listaverk eins og: "Leirfinn", "Plastmund" og "Viðar".

Forseti Alþingis afhjúpaði verkið og sagði í stuttri ræðu sinni að það væru "...til tvær tegundir af banönum í Melabúðinni - Chiquita og önnur sem ég man ekki hvað heitir".

Hasshaus

Miðaldra hasshaus með doktorspróf í alþjóðalögfræði óskar eftir rólegri skrifstofuvinnu. Get hafið störf nú þegar.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: