Frétt — Enter — 12. 12. 2002
Frjálslyndir eftirlýstir
Plaggötum hefur verið dreift í alla grunnskóla og sjoppur á höfuðborgarsvæðinu og á Vestfjörðum.

Flokkur frjálslyndra hefur tekið upp á því að lýsa eftir frambjóðendum fyrir flokkinn til næstu þingkosninga.

"..þetta er hið furðulegasta mál," segir Margrét Sverrisdóttir, eini starfsmaður flokksins sem Baggalútur náði tali af.

"..þegar átti að stilla upp listunum var einfaldlega ómögulegt að finna frambjóðendur, allir þeir sem voru í framboði fyrir fjórum árum virðast einfaldlega hafa horfið sporlaust.

Margrét hefur sérstakar áhyggjur af föður sínum, Sverri Hermannssyni, en rúmir tveir sólarhringar eru síðan hann var síðast fóðraður.

Frá Vinnumálastofnun

Fallegu dömublússurnar komnar. Margir litir. Næg bílastæði.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: