Elísabet Jökulsdóttir, náttúruverndarskáld, skoraði á dögunum á upplýsingafulltrúa Landsvirkjunar í krumlu, "til að sýna honum hver hefur rétt fyrir sér" - eins og hún orðaði það.
Svo virðist sem sannleikurinn sé hennar megin því hún lagði fulltrúann ítrekað - hvort heldur sem er með vinstri, hægri, eða báðum höndum.
Baggalútur innti forsætisráðherra eftir viðbrögðum við ósigri upplýsingafulltrúans: "Það er ljóst að mótmælendur hafa rétt fyrir sér og gott að geta lokið þessu leiðindamáli á jafnfarsælan hátt", sagði Davíð Oddsson.
Vel með farið
eintak af spennusögunni „Þrír um leyndarmálið“ fæst í skiptum fyrir heillegar snjóþvegnar gallabuxur. Fullum trúnaði heitið.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.