Frétt — Enter — 27. 11. 2002

Sögufræg dráttarvél Ingólfs Arnarssonar er loks komin í leitirnar. Um er að ræða vél af gerðinni PLunderMania 900, en talið er að Ingólfur hafi m.a. notað hana til að leggja fyrsta bílastæðið í Reykjavík.

Vélin er í mjög góðu ásigkomulagi enda varðveitt í mysu, eins og raunar flestir farkostir sem fundist hafa frá landnámsöld.

Traktorinn fannst við hefðbundna húsleit lögreglu hjá óvinum ríkisins og verður seldur í brotajárn í vikunni.

Skápahommar

Erótísku vasaljósin eru komin aftur í öllum stærðum. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: