Frétt — Númi Fannsker — 18. 10. 2002
Jarvis Cocker þolir ekki Sigur Rós
Jarvis gerir hér tilraun til að hlusta á lagið "Sæljón"

Jarvis Cocker, sem margir þekkja úr "hljómsveitinni" Pulp sendi frá sér fréttatilkynningu í morgun þar sem hann segist ekki þola hljómsveitina Sigur Rós. Í tillkynningunni segir hann tónlist sveitarinnar vera: "helvítis baul og óþolandi andskotans væl, eins og kettlingur á gelgjuskeiðinu sé að reyna að herma eftir sírenu". Hann telur sveitina vera ofmetnustu hljómsveit Evrópu um þessar mundir og krefst þess að "þaggað verði niður í sveitinni", ellegar muni hann "gera það sjálfur".

Honum var vísað úr landi nú síðdegis.

Tek að mér

að prenta út fyrir fólk. A4 eða minna. Fullum trúnaði heitið. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: