Guðni Ágústsson var "heysáta í einn dag" í tilefni af degi heysátunnar sem haldinn er hátíðlegur víða um land. Guðni var búinn sem heysáta og leiddur um götur Hvolsvallar, Selfoss og Hveragerðis. Í ræðu sem hann hélt í Eden sagði hann m.a: "Þar sem tvö grasstrá koma saman - þar er heysáta. Íslenska heysátan er þurrasta heysáta veraldar! Hún er jafnframt sú næringarríkasta og veldur afar sjaldan heymæði. Hún er verðugur fánaberi íslensks landbúnaðar og grundvöllur velmegunar á Íslandi - og gott ef ekki heiminum öllum!".
Bleik ský
Lítið notuð bleik ský til sölu. Svífa 5–10 metra, halda 100 kg.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.