Frétt — Enter — 5. 10. 2002
Persaköttur talinn ábyrgur fyrir dularfullum mannshvörfum í Garðabæ
Áskeli tókst auðveldlega að láta móður ljósmyndara Baggalúts hverfa.

Áskell, margverðlaunaður persneskur sýningarköttur hefur verið handtekinn, grunaður um að vera valdur að hvarfi 14 ellilífeyrisþega úr Garðabæ.

"..kötturinn hefur ákveðna hæfileika til að leysa fólk bókstaflega upp með augnarráðinu," sagði Reynir Sigurðsson réttardýrageðlæknir. "..þetta er sjaldgæft en ekki einsdæmi. Þekkt er að kýr hafi þessa hæfileika og eins stöku tófa."

Ekki hefur verið ákveðið hvað á að gera við Áskel en það telst honum til málsbóta að ekki er talið að um auðgunarbrot sé að ræða heldur einfaldlega megna óbeit á gömlu fólki.

Góð telpa

óskast til að gæta bjarndýrs. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: