Bræðurnir Jói Björnsson og Jói Hallmarz, sem eru þessa dagana á safarí-ferð um Afríku, hafa fundið undarlegan og gríðarlangan stiga. Stiginn, sem teygir sig til himins svo langt sem augað eygir, virðist bókstaflega spretta upp úr jörðunni eins og planta, að sögn þeirra bræðra.
Bræðurnir hyggjast reyna að klífa stigann nú um helgina, þrátt fyrir að móðir þeirra sé búin að harðbanna þeim það.
Til sölu
Lítið notað sveitarfélag á Langanesi. Áhugasamir hafi samband við afgreiðslu.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.