Frétt — Myglar — 1. 10. 2002
Spánný einkaþota til landsins
Íslensku kaupendurnir völdu að hafa vélina fjólubláa, en einnig var hægt að fá hana í dumbrauðu eða skærgulu.

Íslenskt fyrirtæki hefur fest kaup á splunkunýrri einkaþotu í samvinnu við norska fjárfesta. Vélin kostaði u.þ.b. milljarð íslenskra króna og kemst hún til Færeyja á innan við einni og hálfri klukkustund. Meðal þjónustu sem boðið verður upp á í tengslum við vélina eru innkaupaferðir til Lundúna og Köben nú um jólin, auk þess sem Árni Johnsen hefur beðið um að vélin verði höfð til taks, bara ef ske kynni.

Til sölu

vel með farnir, lítið notaðir sjömílnaskór. Á sama stað fást gefins óskasteinn og fjöregg. Afgreiðsla vísar á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: