Frétt — Kaktuz — 30. 9. 2002
Nýr sendiherra Kína hér á landi
Dr. Shing klæðist sérstökum grínfötum

Í kjölfar brotthvarfs sendiherra Kína vegna eftirmála komu Kínakeisara í sumar hefur verið skipaður nýr sendiherra. Hann heitir Dr. Shing Hetzi og er þekktur grínisti í heimalandi sínu eins og forveri sinn. Dr. Shing hefur meðal annars starfað að gerð grínmynda um menningarbyltinguna, sem hvarvetna hafa notið mikilla vinsælda. Við komuna til landsins sagði Shing "...ætra a glínast mikid í Ísrendingum .... HA,HA,HA!....og gela malga, malga blandala!" aðalstarfi hans hér á landi verður þó að bæta samskipti landanna eftir að sumir djókar forvera hans þóttu ekki fyndnir hér á landi.

Sá eða sú

sem á eftir að skila kvikmyndinni The Gate á Vídeóleigu Valgerðar frá því 12. júní 1988 er vinsamlegast beðin(n) að gera það hið snarasta að viðlögðum sektum.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: