Enn hefur ekki verið látið uppi hver tekur við af Finni Ingólfssyni sem Seðlabankastjóri, nú þegar hann lætur af störfum. Á blaðamannafundi í viðskiptaráðuneytinu í morgun var væntanlegur bankastjóri þó kynntur, en hann var í afar fullkomnu dulargervi og þekktist því ekki.
Afar miklar líkur eru taldar á því að nýr bankastjóri sé hámenntaður í hag- eða viðskiptafræðum og hefur nafn Dr. Stefáns Benediktssonar, prófessors í hagfræði verið nefnt auk Dr. Njáls Njálssonar viðskiptaverkfræðings. Engin leið var þó að bera kennsl á bankastjórann á fundinum í morgun en búist er við að hann verði afhjúpaður um næstu mánaðamót.
Til sölu
vel með farnir, lítið notaðir sjömílnaskór. Á sama stað fást gefins óskasteinn og fjöregg. Afgreiðsla vísar á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.