Frétt — Myglar — 13. 9. 2002
Björgúlfsfeðgar kynna bankastjóraefni
Dimitri var um skeið í Rússneska sjóhernum

Björgúlfsfeðgar hafa kynnt þann aðila sem þeir hyggjast koma í stól bankastjóra Landsbankans. Sá nefnist Dimitri Bambatov og hefur víðtæka reynslu úr viðskiptalífinu í Rússlandi. "Dimitri mun innleiða nýja vídd í íslenskt viðskiptalíf, enda hefur hann tengsl við mjög stór og þekkt samtök í Rússlandi, hehe," sagði Björgúlfur Jr. í samtali við Baggalút.

Til sölu

Nokkrir lítið notaðir verðlaunagripir. Áhugasamir snúi sér til ritstjórnar.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir: