Íslensk stjórnvöld hafa sagt Norðmönnum stríð á hendur og krefjast skilyrðislausrar uppgjafar þeirra. Útsendara íslenska hersins, hvalnum Keikó, tókst að synda upp að ströndum Noregs með kjarnorkusprengju innvortis, og verður hún sprengd ef Norðmenn ganga ekki í einu og öllu að kröfum Íslendinga.
"Tjah, við viljum auðvitað fá olíulindirnar og Smuguna, og svo viljum við líka að Norðmenn gefi okkur tólf stig í næstu 100 Júróvisjónkeppnum," sagði Davíð Oddsson hróðugur þegar blaðamaður innti hann eftir kröfum Íslendinga.
Gefins
Leðurblaka. Kassavön og kelin.
A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.