Frétt — Enter — 20. 8. 2002
Heili úr kamelljóni græddur í 10 ára gamlan dreng
Grímur sýndi ljósmyndara hvernig hann getur nú aðlagast umhverfi sínu fullkomnlega.

10 ára Garðbæingur, Grímur Kjell, fékk nú fyrir stundu að fara heim af heilsugæslustöðinni í Garðabæ, en þar tókst vakthafandi lækni, með aðstoð hjúkrunarfræðings að græða í hann heila úr kamelljóni.

Grímur kom hágrátandi á biðstofu um hádegisbilið með blæðandi gat á hausnum eftir að hafa dottið af hjóli.

Kamelljónið var 3 ára, karlkyns og var jafnan kallað Albert, eða Berti.

Gefins

allt Roxette safnið, komplett á kasettum. A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: