Skagfirðingar fjölmenntu til Reykjavíkur á menningarnótt um helgina og gerðu mikinn usla. Að sögn lögreglu fóru hátíðarhöld þeirra fram með spekt fyrst í stað en um kvöldmatarleytið má segja að þeir hafi algerlega sleppt fram af sé beislinu. Forsprakki þeirra, séra Gunnlaugur frá Hofsstaðarnesi, mun hafa leitt hópinn í hverskyns skrílslátum og ómenningarlegu´athæfi. Þurftu laganna verðir ítrekað að hafa afskipti af hópnum þar sem hann fór um bæinn og hneykslaði samborgara sína með hverskyns dólgshætti og ólátum. Um 60 fórnarlömb Skagfirðinganna voru flutt á slysadeild og þurfti að kalla út sérsveit hreinsunardeildar Reykjavíkurborgar, sem sérhæfir sig í hreinsunaraðgerðum eftir stórbrotin ólæti.
Vínilplata
þar sem Richard Anthony syngur helstu smelli sína fæst gefins. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.