Frétt — Myglar — 16. 8. 2002
Vilja bæta þriðja aðila í hjónaband sitt
Þorgeir, Anna og Tóbías

Hjónin Þorgeir Bender og Anna Grímdal hafa lagt inn erindi til Dómsmálaráðherra þar sem þau fara fram á að fá að bæta þriðja aðila i hjónaband sitt. Sá er sameiginlegur vinur þeirra hjóna, Tóbías Víglundsson. "Hann gerir hvort sem allt það sama og við, mætir í fjölskylduboð, kemur með í sumarbústaðinn og svoleiðis," sagði Anna í samtali við Baggalút. Þorgeir maður hennar kveðst síður en svo afbrýðisamur, enda sé um hagræðingarhjónaband þeirra þriggja að ræða.

Rómverskir riddarar

Vorum að fá nýja sendingu af rúsínum og rófum. A.v.á.

Lesbók19. 7. 2018 — Enter

Ég sé að full­hátt­virtur forseti hins háa Al­þingis er með eitthvað bakkaklór eftir ömurð­ar­veisluna sem hann hélt á Völl­unum að við­stöddu fá­menni í gær.

„Forseti Al­þingis harmar að heim­sókn danska þing­forsetans hafi verið notuð til að varpa skugga á hátíðar­höldin og leyfir sér að trúa því að það sé minni­hluta­sjónar­mið að við­­eigandi sé að sýna danska þing­­for­setanum óvirð­ingu þegar hann sækir okkur heim og kemur fram fyrir hönd danska Þjóð­þingsins og dönsku þjóðar­innar.“ — segir forseti.

Ég mót­mæli herra forseti.

Þessi van­hugsaða og alls óvel­komna heim­sókn var hreint ekki „notuð“ til að varpa skugga á fjöl­milljóna­partíið þitt. Heiðurs­gesturinn flótta­legi sá alveg sjálfur um að varpa sínum skoðana­myrka skugga á hátíða­höldin og eyði­leggja þau gersam­lega.

Það eru miklu fremur Danir sem sýna okkur óvirðingu með því að senda þessa út­dönkuðu rasista­píu hingað — og skömmin er þeirra að púkka upp á hana sem þing­forseta yfir­höfuð.

Það er nefni­lega míkró­minni­hluta­sjónar­mið að halda að það sé í lagi að dubba upp rauð­klædda rasista og leiða til hásætis á hátíðar­þing­fundi á sjálfu Lög­bergi. Og það að gera lítið úr gagn­rýni á þetta skipulags­slys er ekkert annað ómerki­legt yfir­klór og eftirá­mjálm.

Svo eiga menn bara að drullu­fruss­fretast til að biðjast af­sökunar á klúðrinu í stað þess að barma sér undan eðli­legum við­brögðum við þessum skammar­lega undir­lægju– og druslu­gungu­hætti.

Góðar stundir.

 
§ Spiladós




§ Nýjustu fréttir: