Frétt — Enter — 10. 1. 2017
Stjórnarsáttmálinn tilbúinn
Duglegir strákar.

Baggalútur hefur undir höndum glóðvolgan stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar.

Sáttmálann gerðu þeir saman, Bjarni Benediktsson, Óttarr Proppé og Benedikt Jóhannesson — alveg sjálfir í morgun.

Fengu þeir félagarnir mikið hrós fyrir sáttmálann frá samflokksfólki sínu, sem var sammála um að þeim hefði farið mikið fram í vetur.

Hér má sjá sáttmálann í allri sinni dýrð!

Keðjusagarmorðingjar

Nú þarf enginn að láta hátt eldsneytisverð trufla tómstundirnar. Vorum að fá nýja sendingu af rafknúnum keðjusögum í ýmsum stærðum og litum. -Byggsmiðjan

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir:
9. 1. 2017 — Enter

Íslenskir hægrimenn hafa ákveðið að mynda svokallaða hægristjórn. Hefur þetta komið ýmsum töluvert í opna skjöldu, einkum fólki á vinstri …

3. 1. 2017 — Enter

Veganúar stendur nú sem hæst, með tilheyrandi neikvæðum umhverfisáhrifum. Þetta æði hefur nú þegar haft haft alvarleg áhrif á gatnakerfi …

9. 11. 2016 — Enter

Dónald „Jeremíasminn“ Trump var í morgun réttkjörinn forseti Bandaríkja Norður–Ameríku. Mun það vera í fyrsta skipti sem erfðabreytt sætkartafla gegnir …

4. 11. 2016 — Enter

Fjölskylda úr Efra–Breiðholti varð fyrir því óláni nú síðdegis að vera étin af sturluðum hákarli, þar sem þau voru að …