Frétt — Enter — 21. 1. 2015
Framsókn játar að hafa kynnst Gústaf á Tinder
Myndin er sviðsett.

Flugvallarvinir og kunningjar þeirra í Framsókn hættu snarlega við skipun ungs og upprennandi borgarpólitíkusar sem varamanns í mannréttindaráð borgarinnar.

„Við vissum hreinlega ekki að hann hataði flugvelli — og það gengur auðvitað ekki. Að öðru leyti var þetta fínn náungi með heilbrigðar skoðanir á mönnum og málefnum,“ segir talsmaður flokksins — gersamlega miður sín yfir þessum mistökum, þannig.

„Þetta var nú annars bara ákveðið í einhverju flippi. Við fundum þennan gaur á Tinder og hann var 'perfekt mats' eins og maður segir. En maður veit auðvitað aldrei allt um fólk fyrr en maður kynnist því nánar.“

Viltu lífga upp á samkvæmið?

hef mikið framboð skemmtikrafta í barnaafmæli, fermingarveislur, steggja- og gæsaboð o.s.frv. Mjög sanngjarnt verð. Umboðsmaður Alþingis.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir:
20. 1. 2015 — Enter

„Já við ákváðum bara að loka sjoppunni. Það var einhvern veginn engin stemning fyrir þessu,“ segir athafnamaðurinn Númi Tumason, en …

16. 1. 2015 — Enter

Vísindamaðurinn Stephen Hawking er ný formaður þing­nefnd­ar sem hef­ur um­sjón með störf­um Páfagarðs. Er þetta hugsað sem ákveðin jafnvægisaðgerð eftir …

13. 1. 2015 — Enter

Sést hefur til múslimista í Reykjavík í dag. Um er að ræða ungan karlfugl og er hann afar styggur. Sjaldgæft er …

13. 1. 2015 — Enter

Þingmaður sjálfstæðisflokks, sem við nennum hreinlega ekki að nafngreina, leggur til að íslenskir múslímar verði merktir sérstaklega, til aðgreiningar frá …