Uppi varð fótur og fit á veitingastaðnum Las Vegans í miðborginni í gærkvöldi þegar þjóni varð á að segja „gjörðu svo vel“ við einn matargestanna.
Varð sá hinn sami að vonum sármóðgaður, enda í óaðfinnanlegu líkamlegu ásigkomulagi og mátti ætla af orðum þjónsins að hann óskaði honum þess að bæta á sig óþarfa líkamsþyngd — sem næmi allt að þremur kálblöðum og einhverju torkennilegu lárperujukki í snefilmagni. Auk vatnsglass.
Var þjóninum tafarlaust vikið frá störfum og honum gert að fara í sjö mánaða þagnarbindindi auk þ.ess að sækja námskeið um líkamsvirðingu, meðhöndlun grænmetisætna og tilfinningagreind.
Til sölu
fallegur skautbúningur. Hentar vel fyrir karlmann, eða mjög hávaxna konu. A.v.á.
Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.
Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:
Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.
Góðar stundir.
Dótturfélag Kaupþings, hefur selt tæplega 583 milljónir hluta í Arion banka, eða um 29,18% hlutafjár í bankanum, fyrir ríflega 48,8 …
Donald John Trump, fígúra og verðandi valdamesti maður heims, fær í dag góða gjöf frá íslensku þjóðinni í tilefni af …
Aðilar í ferðaþjónustu telja mikil sóknarfæri í að markaðssetja íslenska ofurverðlagningu fyrir erlenda ferðamenn. „Ég meina, hver vill ekki koma …
Baggalútur hefur undir höndum glóðvolgan stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Sáttmálann gerðu þeir saman, Bjarni Benediktsson, Óttarr Proppé og Benedikt Jóhannesson — alveg …