Frétt — Enter — 1. 11. 2011
Sagði óvart 'mér langar' og brennur í helvíti
Þessi mynd var tekin við komuna til vítis.

Endurskoðandi á sextugsaldri mun brenna í helvíti um aldir alda eftir að upp komst að hann hafði sagt „mér langar út að borða í kvöld“ í símtali við eiginkonu sína – algerlega óvart að eigin sögn.

Mun harðar er tekið á þágufallssýki en áður í framhaldslífinu, samkvæmt nýrri reglugerð og er fólk því beðið að tala gætilega og vanda mál sitt.

Þess má einnig geta að þeir sem segja „líter“ og „meter“ fá engan eftirmat í helvíti.

Einkamál

Eldri, atvinnulaus, einstæð, drykkfelld kona í Grindavík óskar eftir að kynnast sjúklega myndarlegum karlmanni á fertugsaldri sem veit ekki aura sinna tal - með náinn vinskap (kynlíf o.fl.) í huga.
A.v.á.

Lesbók22. 10. 2020 — Enter

Það er sérlega ánægjulegt að taka við viðurkenningu fyrir hönd Baggalúts fyrir framúrskarandi rekstur samsteypunnar, og þar með hluti af þeim 2% fyrirtækja sem geta státað af slíkum árangri. Ljóst er að yfirgnæfandi hluti íslensks atvinnulífs er í tómu tjóni og órafjarri frá því að vera framúrskarandi á nokkurn hátt. Mættu þau taka Baggalút og önnur almennileg fyrirtæki sér til fyrirmyndar og hysja upp um sig rekstrarbrækurnar.

Það eru tíu lykilatriði atriði sem hafa komið Baggalúti á þennan eftirsóknarverða stað, sem rétt er að deila með áhugasömum:


  • Ekkert starfsfólk
  • Engin viðvera
  • Ekkert húsnæði
  • Engin þjónusta
  • Engin gildi
  • Engin frí
  • Engin áhætta
  • Ekkert internetsamband
  • Enginn samningsvilji
  • Engin kaffivél

Beri önnur fyrirtæki gæfu til að fylgja fordæmi okkar er ljóst að íslenskur fyrirtækjamarkaður yrði skjótt heilbrigðari og næði undraskjótt að skipa sér í fremstu röð í heiminum. En til þess er lítil von, meðan íslenskir stjórnendur eru upp til hópa óhæfar, ákvarðanafælnar gungur með allan sinn rekstur á bólakafi uppi í bakraufinni á sér.

Góðar stundir.

 
Nýjustu fréttir:
31. 10. 2011 — Enter

Svokallað tölvuhakk verður æ vinsælla á borðum landsmanna í kreppunni enda kílóverð á ungtölvuhakki töluvert undir verði á bæði nauta- …

31. 10. 2011 — Enter

Neytendur á plánetunni jörð eru orðnir sjö milljarðar. Á miðnætti fæddist stúlkubarnið Danica May Camacho á Filippseyjum. Telst hún vera …

28. 10. 2011 — Myglar

Fyrsta verkefni hins nýja og fullkomna varðskips Þórs verður að ráðast á Færeyjar, sem svo lengi hafa ógnað öryggi okkar …

28. 10. 2011 — Enter

Neyðarlögin halda gildi sínu. Þetta er niðurstaða Hæstaréttar sem kvað upp sinn dóm rétt í þessu. Er almenningur því beðinn …